Íbúð á Vistamar ströndinni, Mil Palmeras
Mjög góð studioíbuð á Vistamarströndinni í Mil Palmeras, sem er í um 15 km fjarlægð suður af Torrevieja. Svefnpláss fyrir samtals þrjá fullorðna (klikk-klakk svefnsófi og samlokurúm - ekkert sér svefnherbergi).
Blokkin stendur alveg á ströndinni og tekur því rétt um tvær mínútur að ganga á ströndina. Stórglæsilegur sundlaugargarður er í sameign (opinn 15. júní til 15. september). Veitingastaður í blokkinni við hliðina. Um það bil fimm til sjö mínútur tekur að ganga í stórmarkað, banka og hina veitingastaðina í hverfinu. Vikulegur flóamarkaður nálægt. Frábær staðsetning.
Íbúðin er frátekin frá 1. júlí til 16. ágúst.
Þrif greiðast við lok dvalar. 70 Evrur
Aðbúnaður
-
DVD Spilari
-
Kaffivél
-
Loftkæling
-
Miðstöðvarhiti
-
Örbylgjuofn
-
Sjónvarp
-
Sundlaug - sameiginleg