Fjarkahús í Los Altos, Torrevieja – 4 svefnh. ADSL
Los Altos - mjög gott fjarkahús með stofu, eldhúsi, fjórum svefnherbergjum, baðherbergi og patioi (innréttað sem eldhús) á aðalhæð. Loftkæling í stofu. Miðstöðvarkynding (gas). Á aðalhæðinni eru tvö svefnherbergjanna. Að auki er innréttað rými á jarðhæð. Þar eru tvö af svefnherbergjunum ásamt lítilli stofu og baðherbergi. Samtals er sem sagt um að ræða fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og tvær stofur ásamt mjög góðri sólstofu. Svefnpláss fyrir samtals átta manns. ADSL. Gott sólbaðsþak - garður - sundlaug í sameign. Innanbæjarstrætó Torrevieja stoppar rétt hjá húsinu. Reykingar vinsamlegast utandyra.
Aðbúnaður
-
Fullbúið eldhús með öllu því helsta
-
Kaffivél
-
Loftkæling
-
Miðstöðvarhiti
-
Örbylgjuofn