Glæsilegt raðhús til leigu á Spáni. Cabo Roig
Vel búið sumarhús á Spáni til leigu. Húsið er raðhús í rólegu hverfi sem heitir Lomas de Cabo Roig. Húsið var innréttað sumarið 2008 og er skipulag hússins mjög gott, í húsinu er svefnpláss fyrir 8 manns. Húsið er í lokuðum garði þar sem aðeins er aðgangur fyrir húsráðendur og gesti.
Á fyrstu hæð er rúmgóð stofa ásamt borðstofu, þar er gervihnattasjónvarp með fjölda sjónvarpsrása, DVD spilari og útvarp með CD spilara. Mjög góður svefnsófi er í stofunni. Út frá stofunni er hægt að ganga út á verönd fyrir framan húsið, þar eru sólbekkir, stórt borð og þægilegir stólar. Eldhúsið er mjög vel búið, ísskápur, uppþvottavél og öll helstu áhöld til matargerðar. Í eldhúsinu er einnig þvottavél. Út úr eldhúsi er hægt að ganga út í bakgarðinn þar er góð aðstaða til að borða úti. Baðherbergið er með sturtu.
Á annarri hæð eru þrjú svefnherbergi, hjónaherbergi með góðu skápaplássi, svefnherbergi með 2 einstaklingsrúmum og góðum skápum og síðan minna herbergi með kojum. Baðherbergið á annarri hæðinni er með baðkari og sturtuaðstöðu.
Aðbúnaður
-
DVD Spilari
-
Fullbúið eldhús með öllu því helsta
-
Gasgrill
-
Gervihnattarsjónvarp
-
Handklæðii
-
Hárblásari
-
Kaffivél
-
Loftkæling
-
Miðstöðvarhiti
-
Rúmfatnaður
-
Sjónvarp
-
Sundlaug - sameiginleg
-
Svalir
-
Wifi - Þráðlaust net