Vel staðsett endaraðhús í Torrevieja
VEL STAÐSETT ENDARAÐHÚS Í GÖNGUFÆRI VIÐ FJÖLDA VEITINGASTAÐA OG PÖBBA, VERSLUNARMIÐSTÖÐINA HABANERAS OG CARREFOUR. STUTT Í MIÐBÆ TORREVIEJA, VATNAGARÐINN. Nýlegt endaraðhús í Torreta II hverfinu í Torrevieja. Húsið er með þremur svefnherbergjum og einur baðherbergi, stofu og eldhúsi. Að utanverðu er unnt að ganga upp stiga á efri hæðin þar sem eru þaksvalir með útiborðum og stólum sem og sólbekkjum. Rúmgóð verönd er fyrir framan húsið þar sem er stórt borð með stólum og veglegt gasgrill. Yfir veröndinni er markísa sem unnt er draga yfir borðið í mikilli sól en gott getur verið að hvíla sig á sólini. Lóðin er aflokuð og öll flísalögð. Í svefnherbegjum tveimur eru 2 stök rúm og loftkælikerfi í öðru herbergiu. Hjónaherbergi er með rúmgóðum skápum en í því eru einnig loftkælikerfi. Öll loftkælikerfi í húsinu geta líka hitað vel upp yfir vetrartímann. Í stofunni eru svo og loftkæling, sjónvarp og dvd spilari, að öðru leiti er húsið mjög vel búið, m.a. ofni fyrir þá sem hyggja á ferðalag að vetri til. Sameiginlegur sundlaugargarður er skammt frá húsinu. Aðeins tekur um 10 mínútur að ganga í veitingastaði, internetkaffi og bari. U.þ.b. 15 mínútna gangur er í Carrefour stórmarkaðinn og Habaneras verslunarmiðstöðina í Torrevieja en þar má m.a. finna verslunina Zara, Zara Home, Punkto Roma, Intersport, C&A;, H&M;o.fl. verslanir með þekkt vörumerki. Svipaðan tíma tekur að ganga í Mercadona stórmarkaðinn sem er staðsettur í Torreta hverfinu, þar er einnig að finna banka, apótek, veitingastaði og bari.
GREIÐA ÞARF 60 EVRUR Í ÞRIFAGJALD EN ÞÁ ER ALLT HÚSIÐ ÁSAMT LÍNI ÞRIFIÐ VIÐ BROTTFÖR.
Aðbúnaður
-
DVD Spilari
-
Gasgrill
-
Kaffivél
-
Loftkæling
-
Örbylgjuofn
-
Sjónvarp
-
Sundlaug - sameiginleg
-
Þvottavél