Glæsileg íbúð skammt sunnan Torrevieja
Íbúðin er skammt sunnan við Torrevieja í suðurausturhluta Spánar (uþb 1 klst akstur frá Benidorm og rúmlega 1/2 klst akstur frá flugvellinum á Alicante). Um er að ræða nýlegt glæsilegt 2ja svefnherbergja húsnæði í parhúsi á einni hæð í hverfi sem er á einum vinsælasta stað Costa Blanca svæðis í Playa Flamenca. Húsið er í lokuðu hverfi og fylgir sameiginlegur garður með sundlaug. Í íbúðinni eru öll hugsanleg þægindi, m.a. loftkæling í öllum herbergjum, viftur, hljómflutningstæki, gervihnattasjónvarp með fullt af erlendum stöðvum og vel innréttað eldhús. Íbúðinni fylgir einkagarður og stórar þaksvalir með grillaðstöðu eru yfir öllu húsinu. Stutt er í næstu baðströnd og eins í alla þjónustu. Fjórir 18 holu golfvellir eru í næsta nágrenni.
Aðbúnaður
-
Gasgrill
-
Gervihnattarsjónvarp
-
Kaffivél
-
Loftkæling
-
Miðstöðvarhiti
-
Örbylgjuofn
-
Sjónvarp
-
Sundlaug - sameiginleg
-
Uppþvottavél
-
Þvottavél